Perluskel
Perluskel
Perluskelin er nýjasta afurð Trefja og hefur reynsla okkar og óskir viðskiptavina gegnum tíðina verið höfð að leiðarljósi við hönnun á þessum potti.
„Stílhreint form, rúmgóður, þægilegur, auðveldur í þrifum“ Þessi atriði voru hönnuðum Trefja efst í huga við vinnuna.
- Perluskel býður upp á einfaldan frágang og tengingar.
- Það er afar þægilegt að þrífa hann.
- Þessi pottur er tilvalinn þar sem nóg er af heitu vatni.

Stærð 2.3x2.3m

Rúmmál 1800 lítrar

8 manns
Verð
kr. 586.000Veldu kosti
Upplýsingar
Potturinn kemur tilbúninn til tengingar, þ.e. komið er niðurfall, tenging fyrir inntak og tvo yfirföll.
Að auki eru potturinn einangraður með úrítani og Bláskel, Mánaskel og Ölduskel koma á fótum.
Leiðbeiningar
Frekar upplýsingar um uppsetningu og góð ráð má finna á Leiðbeiningasíðunni. Þar er meðal annars hægt að finna bækling sem þú færð með heita pottinum.
Aukahlutir
Bættu við aukahlutum til þess að móta pottinn að því sem hentar þér bestHitastýring
Allir heitir pottar verða að hafa hitastýringu
Við bjóðum uppá þrjár gerðir af hitastýringu. Sjá Hitastýringar í netversluninni.

Vatnsnudd
Njóttu þess að láta nudda þig í heita pottinum
Bættu vatnsnuddi við pottinn og með einum takka eru komin með nudd beint í pottinn þegar þér hentar. Hægt er að fá alla heitu pottana okkar með tveimur uppsetningum á vatnsnuddi:
4 stúta – Kemur tilbúið ísett með nudddælu, tengiboxi og starthnappi
6 stúta – Kemur tilbúið ísett með nudddælu, tengiboxi og starthnappi
Ljós
Þægileg lýsing á dimmum vetrarkvöldum
Ljós í pottinum er frábær viðbót á dimmum vetrarkvöldum og myndar skemmtilega lýsingu þegar að farið er að rökkva. Í stað þess að vera með útiljós kveikt er hægt að vera mleð notalega stemmningu í pottinum sjálfum með ljósin innbyggð í pottinn.
Hægt er að fá eins mörg ljós og menn vilja, hins vegar er algengast að sett sé eitt ljós.
Einangrað lok
Létt og meðfærilegt
Lok
Verðu pottinn og verndaðu aðra
Gott er að geta lokað pottinum til að forðast að óhreinindi fjúki í hann á meðan hann er að fylla sig eða þegar er ekki verið að nota hann.
Þegar börn eru að leik kringum pottinn er kostur að geta lokað honum þannig að enginn hætta sé á að smáfólkið detti ofan í hann. Ávallt er mikilvægt að sýna aðgát þar sem börn eru að leik og tryggja að potturinn sé þeim ekki slysagildra.