Að búa til afbrigðavöru (Variable product).

  1. Þú byrjar á því að stofna þessar tvær vörur í DK og velur birta í vefverslun. Þá birtast þessar tvær vörur í Integrator með mismunandi vörunúmer. 
  2. Í Integrator ferð þú í Add Master product.
  3. Stnadard Fields: þar getur þú ýtt á bláa takkann til þess að fá vörunúmer á Master vöruna, ef þið ætlið að setja vörunúmer sjálf, þá þarf að passa að það er nú þegar ekki til eða í notkun. Fyllið svo út Name, Status pending í bili (published þegar varan er tilbúinn á vefinn). Fyllið Short Description og Description ef það á við svo getið þið flokkað í flokka undir Categories eða sett Tags.
  4. Variants: Þar er hægt að setja inn t.d. stærð, lit, gerð o.s.frv með því að smella á blá + hnappinn „Add variation option“ í fyrri gluggan setjum við nafnið á tegundinni (t.d. „Stærð“) og í seinni gluggan setjum við gildin (t.d. S, M, L og XL) með kommu „,“ á milli. Muna að vista hægra megin. Þá birtast þessir valkostir fyrir neðan „Unassigned variants“ þar er hægt að velja assign takkann og finna réttu vöruna í listanum til að merkja hana sem þessa stærð.
  5. Þegar það er búið að tengja allar vörur þá þarf að breyta status úr pending yfir í Published.