Kaia

Kaia sauna

Hagkvæm. Nútímaleg. Tímalaus.

Kynntu þér Kaia, útisaununa sem er mátulega stór og alveg einstök í útliti. Hreinar línur, nútímaleg hönnun og hringlaga gluggi sem sækir innblástur í Zen-heimspeki einkenna Kaia. En fyrir þau sem vilja enn meira næði er hún fáanleg með ferköntuðum glugga, ofarlega á hægri hlið.

Þegar stigið er út á veröndina tekur falleg  stemningslýsing á móti manni. Innandyra skapar hlýlegur viður og mjúk innilýsing notalegt andrúmsloft sem breytir hverri saunuferð í vellíðunarstund.

Kaia er hönnuð til notkunar árið um kring með lágmarksviðhaldi og er góður kostur fyrir þau sem kunna að meta nútímalegan stíl og endingargóða smíði.

Með Kaia verður vellíðan hluti af daglegum takti lífsins.

 

Frá kr. 0

Tegund
Hitari

Helstu eiginleikar

Nútímaleg hönnun

Bekkir úr hitameðhöndlaðri ösp (Thermo aspen). Stemningslýsing (LED). Innbyggð lýsing sem skapar hlýlegt og notalegt andrúmsloft. Hreinar línur, gott skipulag og áberandi klæðning gera Kaia að spennandi kosti, hvort heldur sem er á pallinn, í garðinn eða við sumarhús.

Hágæða efni

Smíðuð úr hitameðhöndluðum við (thermowood) með endingargóðu álþaki sem tryggir styrk, stöðugleika og góða vörn gegn raka.

Einkennandi hringlaga gluggi

Innblásinn af Zen og Enso-hringnum sem táknar jafnvægi og heild. Glugginn rammar inn náttúruna og hleypir birtunni mjúklega inn en veitir jafnframt næði.

Einnig fáanleg með ferhyrndum glugga sem veitir enn meira næði.

Skilvirk og hagkvæm upphitun

Ekkert pláss fer til spillis í þessari saunu – það er gernýtt. Þess vegna nær hún að hitna hratt með lágmarks orkunotkun.

Vellíðan allt árið

Snjöll einingahönnun – einföld og fljótleg samsetning. Lagt er upp úr að hún nýtist vel, hvort sem er í sumaryl eða vetrarkulda.

Stemningslýsing (LED)

Innbyggð lýsing skapar hlýlegt, aðlaðandi og róandi andrúmsloft innandyra.

Efniviður

Stærð