Til að undirbúa tilboð eru vörur settar í vöruflokkinn Tilboðsvörur og þá eru þær sýnilega á /tilbod síðunni og hægt að hafa þær tilbúnar fyrir komandi tilboð.
Til að setja afslátt (lægra verð) á vörur er sett inn Útsöluverð (í Woocommerce) og einnig hægt að tímastilla það með að smella á Tímasett og hægt er að sjá allar vörur sem eru á útsölu (á lægra verði) á /utsala (ath. að vörur með tímastilltan afslátt sjást bara þegar að afslátturinn er í gildi).

Þessi síða (/utsala) er þá fín til að staðfesta hvað er með útsöluverð hverju sinni eða fara yfir hvort nokkur útsöluverð séu þegar komin í gang og ekki tímastillt 😉
Banner á forsíðu
Til að fela venjulegu bannerana og hafa bara tilboðsbanner virkann þarf að virkja bannerinn fyrir tilboðin og afvirkja hinn. Til þess er hægt að smella á punktana þrjá (…) og síðan Disable og velja/virkja grænt á öllum tækjum með að smella eða afvirkja með að breyta í rautt.

Hvernig á að hreinsa Tilboðsvörur?
Þ.s. ekki er hægt að uppfæra margar vörur í einu og taka út vöruflokkinn og við nennum ekki að uppfæra hverja vörur fyrir sig…þá er auðveldast að henda vöruflokknum Tilboðsvörur og búa svo til nýjann með sama nafni og setja hann undir Óflokkað vöruflokkinn. Þá þarf bara að uppfæra /tilbod síðuna til að birta vörur úr þeim (nýja) vöruflokk (sem er tómur) og allt er tómt á síðunni. ATH. lenti í því að síðan var að frjósa í Edit mode þegar valið er að breyta einingunni með vörunum, þá valdi ég kassana niðri sem sýna ekki síðuna heldur bara „kassa“ fyrir einingar á síðunni og þá virkaði það (líklegast af því það var verið að henda vöruflokknum og hún lendir í einhverjum vandræðum).