Eldstæði Summit 24 Fire Pit

kr. 106.919

Ný tegund af eldstæði frá Solo Stove

Á lager

Vörunúmer: SS24-SD-3.0 Flokkar: ,

Lýsing

Í miðjunni á nýja eldsstæðinu, Summit, er Quick-Strike Cone™, nýjung sem gerir þér kleift að kveikja eld á örfáum sekúndum. Þú getur að sjálfsögðu kveikt upp á hefðbundinn hátt en þú getur líka notað Solo Stove Fire Starter Gel™  sem sett er í keiluna í miðjunni og eldurinn kviknar allt að þrisvar sinnum hraðar. Á örskotsstundu geturðu notið afslappaðra kvöldstunda við eldinn.

Summit eldstæðið er einnig með áföstum standi sem gerir þér kleift að nota það á fjölbreyttu undirlagi. Vönduð smíð úr ryðfríu stáli gerir það einstaklega endingargott og tæringarþolið. Það er hannað til að þola margra ára notkun.

Stærð (eldstæði og standur)

  • Þvermál: 61 cm
  • Hæð:  39,1 cm
  • Þyngd: 15,9 kg

Efni: Ryðfrítt stál

Leiðbeiningar

Raðaðu litlum, þurrum viðarkubbum lárétt í kringum Quick-Strike Cone™. Byrjaðu með um 5–6 klofnum viðarkubbum.
Helltu Solo Stove Fire Starter Gel™ í miðju keilunnar þar til gelið safnast í þrjú hólf neðst í eldstæðinu.
Bættu smám saman við eldiviði til að halda eldinum lifandi. Forðastu að yfirfylla brunahólfið eða stafla viði yfir loftopunum, þar sem það hindrar loftflæði og getur valdið reykmyndun.
Smávægilegur reykur við uppkveikju er eðlilegur og hverfur fljótt þegar eldurinn nær sér á strik.

Ryðfrítt stál með karakter
Með tímanum myndast falleg gyllt og bláleit patína á ryðfría stálinu – eðlilegur hluti af útliti og sjarma eldstæðisins.
Til að viðhalda fallegu yfirborði skaltu þurrka það af með mjúkum bursta eða hreinsiefni fyrir ryðfrítt stál. Ekki þarf að nota vatn eða sápu.

Veldu góðan og öruggan stað
Notaðu reyklausa eldstæðið alltaf á stöðugu, óbrennanlegu undirlagi og hafðu það fjarri:
Þakskeggjum
Lofti yfir pöllum eða veröndum (já, jafnvel þó það sé hátt til lofts)
Öðrum eldfimum efnum

Neistar og glóð: Aðstæður í umhverfi eða tegund eldiviðar geta valdið því að neistar eða glóð sleppi út úr eldstæðinu og skemmi húsgögn eða aðra hluti í nágrenninu. Með neistaneti má draga verulega úr því að neistar og glóð berist út.

Öryggið í fyrirrúmi
Skildu aldrei við eld sem logar án eftirlits.
Varúð – heitt yfirborð: Ytra byrði ryðfría eldstæðisins verður mjög heitt í notkun. Gættu þess að börn, gæludýr og eldfim efni séu í öruggri fjarlægð.
Til að auka öryggi geturðu notað Surround-borðið í kringum eldstæðið.
Hafðu alltaf slökkvitæki eða vatn við höndina fyrir neyðartilvik.
Þótt eldstæðið sé með innbyggðum standi þarftu ávallt að ganga úr skugga um að undirlagið þoli háan hita.

  • Auðveld þrif
    Leyfðu reyklausa eldstæðinu að kólna alveg.
    Fjarlægðu botnplötuna til að komast að öskubakkanum.
    Tæmdu öskuna og settu síðan alla hlutina aftur á sinn stað.