Lýsing
Nú er hægt að breyta hvaða skel sem er í rafhitaðan pott! Við höfum útbúið kassa úr trefjaplasti sem hýsir allan þann búnað sem þarf til að hita vatnið í pottinum og til að halda því tandurhreinu. Kassanum er auðvelt að koma fyrir, svo sem í þrepi við pottinn.
Til hvers? Þó að margir viðskiptavina okkar séu hæstánægðir með rafhitaða pottinn frá Trefjum hafa einhverjir óskað eftir potti sem hefur aðra lögun, er stærri eða minni en hinn hefðbundni rafhitaði pottur. Auk þess þykir mörgum kostur að geta fellt pottinn niður í pall og klætt hann með efni að eigin vali.
Við ákváðum því að svara kallinu og hér er lausnin komin, rafhitabox með öllum búnaði sem tengja má við hvaða skel sem er. Hægt er að tengja rafhitaboxið við allar tegundir potta frá Trefjum því þeir eru sérlega vel einangraðir. Undir akrýlyfirborðinu er bæði níðsterkt trefjaplast og þykkt lag af úretani.
Í rafhitaboxinu er:
- Stjórntölva með Wifi
- Sjálfvirkur hitastillir
- Hljóðlát hringrásardæla
- Ozon bakteríueyðir
- Titanium hitari
- Síuhús með pappasíu sem auðvelt er að þrífa
Búnaðurinn nýtist einnig þeim sem vilja gera við eldri rafmagnspotta með einföldum hætti.








