Askur
Askur er hringlaga pottur úr litfögru trefjaplasti með lerkiramma.
Hann rúmar allt að sjö manns því þvermál pottsins er 2,0 m
Hér er lögð áhersla á einfaldan frágang svo fljótlegt er að koma honum fyrir.
Potturinn kemur tilbúinn til tengingar, með lerkiklæðningu sem er ómeðhöndlað lerki sem má grána eða hægt að meðhöndla að vild.

Stærð 2x2m

Rúmmál 1800 lítrar

7 manns
Settu saman pottinn þinn
Aukahlutir
Bættu við aukahlutum til þess að laga pottinn að þínum þörfumHitastýring
Allir heitir pottar verða að hafa hitastýringu
Við bjóðum upp á þrjár gerðir af hitastýringum. Sjá Hitastýringar í netversluninni.
Einangrað lok
Létt og meðfærilegt
Lok
Verðu pottinn og verndaðu aðra
Gott er að geta lokað pottinum til að forðast að óhreinindi fjúki ofan í hann á meðan hann er að fylla sig eða þegar ekki er verið að nota hann.
Þegar börn eru að leik í kringum pottinn er kostur að geta lokað honum þannig að engin hætta sé á að smáfólkið detti ofan í hann. Ávallt er mikilvægt að sýna aðgát þar sem börn eru að leik og tryggja að potturinn sé ekki slysagildra.