Lýsing
Harvia Cilindro rafmagnshitarinn inniheldur mikið magn af steinum. Hvernig viltu hafa raka og hita í saununni þinni? Með því að ausa vatni á hliðina á hitaranum verður heita gufan „mjúk“ en „skörp“ þegar vatni er hellt beint ofan á steinana. Cilindro er með hitastilli og tímastilli. Hægt er að stilla hitarann þannig að hann fari í gang eftir 1-8 klst. Hægt er að stilla tímann sem hitarinn er í gangi, frá 1-4 klst. Hann slekkur sjálfkrafa á sér.
Hitarinn tekur um 80 kg af steinum og hentar vel fyrir saunur sem eru 8-14 m³ að stærð.





