Askur
Askur er hringlaga pottur úr litfögru trefjaplasti sem hægt er að fá með eða án klæðningar.
Við bjóðum upp á fallega klæðningu úr lerki. Óþarfi er að bera á lerkið ef ætlunin er að leyfa því að grána.
Með klæðningu er hann tilbúinn til notkunar eða Plug & Play eins og það er stundum kallað.
Hann rúmar allt að sjö manns því þvermál pottsins er 2,0 m
Hér er lögð áhersla á einfaldan frágang svo fljótlegt er að koma honum fyrir.
Þennan pott er líka hægt að fá með kamínu sem er góður valkostur á svæði þar sem ekki er hitaveita.

Stærð 2x2m

Rúmmál 1800 lítrar

7 manns
Settu saman pottinn þinn
Aukahlutir
Bættu við aukahlutum til þess að laga pottinn að þínum þörfumHitastýring
Allir heitir pottar verða að hafa hitastýringu
Við bjóðum upp á þrjár gerðir af hitastýringum. Sjá Hitastýringar í netversluninni.
Einangrað lok
Létt og meðfærilegt
Lok
Verðu pottinn og verndaðu aðra
Gott er að geta lokað pottinum til að forðast að óhreinindi fjúki ofan í hann á meðan hann er að fylla sig eða þegar ekki er verið að nota hann.
Þegar börn eru að leik í kringum pottinn er kostur að geta lokað honum þannig að engin hætta sé á að smáfólkið detti ofan í hann. Ávallt er mikilvægt að sýna aðgát þar sem börn eru að leik og tryggja að potturinn sé ekki slysagildra.
Ljós
Þægileg lýsing á kvöldin
Ljós í pottinum er frábær viðbót. Það veitir fallega lýsingu þegar að farið er að rökkva. Í stað þess að vera með útiljósin kveikt er hægt að skapa notalega stemmningu þar sem ljósin eru innbyggð í pottinn.
