Frostaskel
Víxlböð hafa fyrir löngu sannað gildi sitt. Nú bjóðum við upp á minni pott sem kallast Frostaskel og hentar vel fyrir kalt bað.
Frostaskel er átthyrnd eins og Unaðsskel sem gerir þær að hinu fullkomna pari. Potturinn er hannaður fyrir einn en það komast hæglega fyrir tveir fullorðnir.
Það er auðvelt að koma pottinum fyrir því hann kemur á fótum.
Skelltu þér í Frostaskel – enn meiri vellíðan í heita pottinum!

Stærð 1.4×1.4m

Rúmmál 650 lítrar

1-2 manns
Settu saman pottinn þinn
Upplýsingar
Potturinn kemur einangraður og tilbúinn til tengingar, þ.e. komið er niðurfall, tenging fyrir inntak og fjögur yfirföll.
Leiðbeiningar
Frekari upplýsingar um uppsetningu og góð ráð má finna á Leiðbeiningasíðunni. Þar er meðal annars að finna bækling sem þú færð afhentan með heita pottinum.
Aukahlutir
Bættu við aukahlutum til þess að laga pottinn að þínum þörfumHitastýring
Allir heitir pottar verða að hafa hitastýringu
Við bjóðum upp á þrjár gerðir af hitastýringum. Sjá Hitastýringar í netversluninni.
Einangrað lok
Létt og meðfærilegt
Lok
Verðu pottinn og verndaðu aðra
Gott er að geta lokað pottinum til að forðast að óhreinindi fjúki ofan í hann á meðan hann er að fylla sig eða þegar ekki er verið að nota hann.
Þegar börn eru að leik í kringum pottinn er kostur að geta lokað honum þannig að engin hætta sé á að smáfólkið detti ofan í hann. Ávallt er mikilvægt að sýna aðgát þar sem börn eru að leik og tryggja að potturinn sé ekki slysagildra.
Ljós
Þægileg lýsing á kvöldin
Ljós í pottinum er frábær viðbót. Það veitir fallega lýsingu þegar að farið er að rökkva. Í stað þess að vera með útiljósin kveikt er hægt að skapa notalega stemmningu þar sem ljósin eru innbyggð í pottinn.


