Báruskel


Báruskelin er góður kostur þar sem pláss fyrir heitan pott er takmarkað. Hann hefur oft verið notaður innanhúss á stórum baðherbergjum, á svölum eða á húsþökum svo dæmi séu tekin.

  • Meginmunurinn á Báruskel og baðkari er að Báruskelin er mun dýpri.
  • Hægt er að koma honum inn um flestar venjulegar dyr þannig að möguleikar innanhúss eru óþrjótandi.
  • Hann er auðveldur í þrifum og allri umgengni.
size
Stærð 1.94×1.44m
volume
Rúmmál 700 lítrar
people
4 manns

Settu saman pottinn þinn

Litur
Fittingspakki
Við mælum með Fittingspakka 2
Hitastýring
Við mælum með sjálfvirkri hitastýringu
Ljós
Nudd
Lok
Við mælum með einangruðu loki
Fætur
Athugið að afgreiðslutími er allt að tvær vikur (nema að potturinn sé til á lager)

Upplýsingar

Potturinn kemur einangraður og tilbúinn til tengingar, þ.e. komið er niðurfall, tenging fyrir inntak og tvö yfirföll.

Leiðbeiningar

Frekari upplýsingar um uppsetningu og góð ráð má finna á Leiðbeiningasíðunni. Þar er meðal annars að finna bækling sem þú færð afhentan með heita pottinum.

Myndasafn

Aukahlutir

Bættu við aukahlutum til þess að laga pottinn að þínum þörfum

Hitastýring

Allir heitir pottar verða að hafa hitastýringu

Við bjóðum upp á þrjár gerðir af hitastýringum. Sjá Hitastýringar í netversluninni.

Vatnsnudd

Njóttu þess að láta nudda þig í heita pottinum

Bættu vatnsnuddi við pottinn og með einum takka er komið nudd beint í pottinn þegar þér hentar. Hægt er að velja um tvenns konar uppsetningu á nuddkerfi í alla potta frá okkur:
Fjögurra stúta – Kemur tilbúið ísett með nudddælu, tengiboxi og starthnappi
Sex stúta – Kemur tilbúið ísett með nudddælu, tengiboxi og starthnappi

Ljós

Þægileg lýsing á kvöldin

Ljós í pottinum er frábær viðbót. Það veitir fallega lýsingu þegar að farið er að rökkva. Í stað þess að vera með útiljósin kveikt er hægt að skapa notalega stemmningu þar sem ljósin eru innbyggð í pottinn.

Ljós fyrir pott

Einangrað lok

Létt og meðfærilegt

Lok

Verðu pottinn og verndaðu aðra

Gott er að geta lokað pottinum til að forðast að óhreinindi fjúki ofan í hann á meðan hann er að fylla sig eða þegar ekki er verið að nota hann.

Þegar börn eru að leik í kringum pottinn er kostur að geta lokað honum þannig að engin hætta sé á að smáfólkið detti ofan í hann. Ávallt er mikilvægt að sýna aðgát þar sem börn eru að leik og tryggja að potturinn sé ekki slysagildra.