Ölduskel
Ölduskelin er stór pottur sem hefur verið vinsæll á minni sundstöðum, líkamsræktarstöðvum og sólbaðstofum svo dæmi séu tekin eða þar sem þörf er á að koma mörgum fyrir í einu.
- Ölduskelin er fáanleg bæði með yfirfallsrennu og án hennar.
- Ef Ölduskelin er notuð á opinberum stöðum er nauðsynlegt að hafa yfirfallsrennu á pottinum. Það er til þess að vatnið sé eins hreint og framast er unnt.
- Þessi pottur kemur með áföstum fótum svo auðvelt er að koma honum fyrir.
Yfirfallsrenna
Hægt að fá pottinn með yfirfallsrennu þannig að vatnið flæðir yfir brúnina og skapa svokallað „infinity-look“.

Stærð 2.96×1.94m
(2.5×3.48m með yfirfallsrennu)

Rúmmál 2200 lítrar

10 manns

Settu saman pottinn þinn
Upplýsingar
Potturinn kemur einangraður og tilbúinn til tengingar, þ.e. komið er niðurfall, tenging fyrir inntak og tvö yfirföll.
Leiðbeiningar
Frekari upplýsingar um uppsetningu og góð ráð má finna á Leiðbeiningasíðunni. Þar er meðal annars að finna bækling sem þú færð afhentan með heita pottinum.
Teikningar af Ölduskel
Teikningar af Ölduskel með yfirfallsrennu
Aukahlutir
Bættu við aukahlutum til þess að laga pottinn að þínum þörfumHitastýring
Allir heitir pottar verða að hafa hitastýringu
Við bjóðum upp á þrjár gerðir af hitastýringum. Sjá Hitastýringar í netversluninni.

Vatnsnudd
Njóttu þess að láta nudda þig í heita pottinum
Bættu vatnsnuddi við pottinn og með einum takka er komið nudd beint í pottinn þegar þér hentar. Hægt er að velja um tvenns konar uppsetningu á nuddkerfi í alla potta frá okkur:
Fjögurra stúta – Kemur tilbúið ísett með nudddælu, tengiboxi og starthnappi
Sex stúta – Kemur tilbúið ísett með nudddælu, tengiboxi og starthnappi
Ljós
Þægileg lýsing á kvöldin
Ljós í pottinum er frábær viðbót. Það veitir fallega lýsingu þegar að farið er að rökkva. Í stað þess að vera með útiljósin kveikt er hægt að skapa notalega stemmningu þar sem ljósin eru innbyggð í pottinn.

Ljós fyrir pott
Einangrað lok
Létt og meðfærilegt
Lok
Verðu pottinn og verndaðu aðra
Gott er að geta lokað pottinum til að forðast að óhreinindi fjúki ofan í hann á meðan hann er að fylla sig eða þegar ekki er verið að nota hann.
Þegar börn eru að leik í kringum pottinn er kostur að geta lokað honum þannig að engin hætta sé á að smáfólkið detti ofan í hann. Ávallt er mikilvægt að sýna aðgát þar sem börn eru að leik og tryggja að potturinn sé ekki slysagildra.

Pottar fyrir íslenskar aðstæður
Yfirborð pottanna er úr hágæða akrýl – einstaklega sterku plastefni sem er fallegt í áferð og mjög auðvelt að þrífa. Akrýlið hrindir frá sér gróðri og óhreinindum, sem gerir það fullkomið fyrir heitar laugar í íslensku veðurfari.
Undir yfirborðinu er sterkt lag úr trefjaplasti (fiberglass) sem gerir pottinn sjálfberandi. Því þarf ekki að smíða flókna burðargrind, og potturinn heldur lögun sinni ár eftir ár – jafnvel í miklum hita- og kuldasveiflum.
Ysta lagið er kraftmikil einangrun (úretan) sem dregur úr varmatapi og tryggir hagkvæman rekstur. Þetta þriggja laga kerfi – akrýl, trefjaplast og einangrun – er vandlega hannað til að standast krefjandi íslenskt veður og tryggja að pottarnir frá Trefjum séu endingargóðir, sparneytnir og ánægjulegir í notkun.