Perluskel
með yfirfallsrennu
Perluskel er pottur fagurkerans. Hér hefur yfirfallsrennu verið bætt við Perluskel til að vatnið megi flæða yfir brúnina og skapa svokallað „infinity-look“.
- Stílhreinn, rúmgóður og þægilegur.
- Perluskel býður upp á einfaldan frágang og tengingar.
- Það er auðvelt að þrífa hann.
- Þessi pottur er tilvalinn þar sem nóg er af heitu vatn.
Stærð 2.5×2.5m
Rúmmál 1800 lítrar
8 manns
Settu saman pottinn þinn
Upplýsingar
Potturinn kemur einangraður og tilbúinn til tengingar, þ.e. komið er niðurfall, tenging fyrir inntak og fjögur yfirföll. Á myndunum hérna við hliðina má finna bæði myndir af stærðum á pottinum með yfirfallsstútum og yfirfallsrennu.
Leiðbeiningar
Frekari upplýsingar um uppsetningu og góð ráð má finna á Leiðbeiningasíðunni. Þar er meðal annars að finna bækling sem þú færð afhentan með heita pottinum.
Aukahlutir
Bættu við aukahlutum til þess að laga pottinn að þínum þörfumHitastýring
Allir heitir pottar verða að hafa hitastýringu
Við bjóðum upp á þrjár gerðir af hitastýringum. Sjá Hitastýringar í netversluninni.
Vatnsnudd
Njóttu þess að láta nudda þig í heita pottinum
Bættu vatnsnuddi við pottinn og með einum takka er komið nudd beint í pottinn þegar þér hentar. Hægt er að velja um tvenns konar uppsetningu á nuddkerfi í alla potta frá okkur:
Fjögurra stúta – Kemur tilbúið ísett með nudddælu, tengiboxi og starthnappi
Sex stúta – Kemur tilbúið ísett með nudddælu, tengiboxi og starthnappi
Ljós
Þægileg lýsingá kvöldin
Ljós í pottinum er frábær viðbót. Það veitir fallega lýsingu þegar farið er að rökkva. Í stað þess að vera með útiljós kveikt er hægt að skapa notalega stemmingu þar sem ljósin eru innbyggð í pottinn.
Mögulegt er að hafa fleiri en eitt ljós þó að það sé algengast.
Einangrað lok
Lok
Verðu pottinn og verndaðu aðra
Gott er að geta lokað pottinum til að forðast að óhreinindi fjúki ofan í hann á meðan hann er að fylla sig eða þegar ekki er verið að nota hann.
Þegar börn eru að leik í kringum pottinn er kostur að geta lokað honum þannig að engin hætta sé á að smáfólkið detti ofan í hann. Ávallt er mikilvægt að sýna aðgát þar sem börn eru að leik og tryggja að potturinn sé ekki slysagildra.