Lýsing
Við smíði rafhitaðra potta í Trefjum er lögð áhersla á að potturinn og sá búnaður sem honum fylgir sé í senn einfaldur og traustur. Nauðsynlegt er að allar lagnir pottsins tæmist þannig að ekki sé hætta á að hann eða búnaðurinn frostspringi.
Rafhitaðir pottar koma með: Sjálfvirkum hitastilli, Cartirage filter hreinsibúnaði, Ozon bakteríueyði, hringrásardælu.
- Mikið er lagt upp úr því að allir varahlutir í pottana séu fáanlegir í Trefjum. Auk þess að veita þjónustu sem tengist pottunum um ókomna framtíð.
- Margar af þeim lausnum sem við notum í rafhituðu pottana okkar eru fengnar úr bátaframleiðslu Trefja og eru þrautreyndar til sjós.